
Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson
Krókaaflamarksbátur Vísis, Fjölnir GK, hefur verið gerður út frá Skagaströnd frá því um 20 ágúst. Báturinn hefur alloft áður verið gerður út frá Skagaströnd á þessum árstíma með áherslu á ýsuveiðar. Tvær áhafnir eru á Fjölni og ræddi heimasíðan við skipstjórana, þá Kristinn Arnberg Krstinsson og Júlíus Magnús Sigurðsson. Kristinn Arnberg sagði að þeir Fjölnismenn væru orðnir býsna vanir því að róa frá Skagaströnd. “Það er oft gott að róa þaðan á þessum tíma árs og það hefur verið hægt að fá hérna býsna góða ýsu. Frá Skagaströnd hafa verið gerðir út allmargir bátar á haustin og nú eru þar til dæmis nokkrir snurvoðarbátar. Vandinn varðandi ýsuna hefur verið hlýr sjór því hún skilar sér illa á miðin við þær aðstæður. Gömlu mennirnar hafa oft sagt að ýsan komi þegar fer að grána í fjöll. Framan af var veiðin heldur döpur en hún hefur batnað mikið að undanförnu,” sagði Kristinn, sem er að taka við bátnum af Júlíusi að róðri dagsins loknum.
Þegar rætt var við Júlíus í morgun var Fjölnir á landleið og var aflinn 11 – 12 tonn. ”Það var ágætur afli eins og verið hefur að undanförnu. Aflinn er blandaður, þorskur og ýsa. Fyrri part þessa mánaðar var veiðin heldur slök en síðustu tvær vikurnar hafa verið fínar og enginn róður klikkað. Aflinn hefur verið frá 7 og upp í 12 tonn í róðri og hann hefur verið góð blanda af þorski og ýsu. Þorskur hefur oft verið um 60% og ýsan um 40% og þetta hefur verið gæðafiskur. Frá því að báturinn fór norður höfum við veitt rúm 200 tonn, 120 tonn af þorski og um 100 tonn af ýsu. Mér líst vel á framhaldið og það er klárt að ef veðrið helst gott þá fiskum við. Gera má ráð fyrir að við höldum héðan heim til Grindavíkur um mánaðamótin nóvember – desember en vera kann að við róum eitthvað frá Neskaupstað áður en að því kemur,” sagði Júlíus.