
Línuskip Vísis í Grindavík, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, lönduðu í Neskaupstað á miðvikudag og í gær. Skipin voru í sínum fyrsta túr eftir að hafa verið í slipp. Túrinn var stuttur hjá þeim báðum en þau voru kölluð inn til löndunar því hráefni vantaði í vinnsluhús Vísis í Grindavík.
Páll Jónsson kom til löndunar á miðvikudaginn og var Jónas Ingi Sigurðsson skipstjóri spurður hvar hefði verið veitt. “Við byrjuðum á að leggja hálfa lögn á Selvogsbankanum til að kanna hvort allt væri í lagi eftir slippinn. Eftir það þurftum við að fara inn til Grindavíkur til að fá smávegis lagfært. Síðan var haldið austur eftir og byrjað á að leggja við Hrollaugseyjar. Að þeirri lögn lokinni var haldið á Héraðsflóann og þar voru teknar tvær lagnir. Haldið var til löndunar í Neskaupstað að þessu loknu og var aflinn um 60 tonn. Meirihluti aflans var þorskur en síðan var töluvert af ýsu og loks var keila, hlýri karfi og ufsi í aflanum. Ég geri ráð fyrir að við verðum áfram hér fyrir austan en mikilvægt er að það fáist blandaður afli,” sagði Jónas Ingi.

Sighvatur kom til löndunar í gærmorgun og leitaði tíðindamaður heimasíðunnar frétta hjá Aðalsteini Rúnari Friðþjófssyni skipstjóra. ”Það er alltaf gott að hefja veiðar á ný eftir töluvert hlé. Í þessum túr voru það einungis tvær lagnir hjá okkur. Farið var norður fyrir land og var fyrri lögnin tekin á Skjálfandanum of sú síðari á Bakkaflóa. Aflinn var 130 kör eða 44 tonn. Ég geri ráð fyrir að við verðum áfram hérna fyrir austan land enda fæst hér stór og góður fiskur á þessum árstíma,” sagði Aðalsteinn Rúnar.
Bæði línuskipin héldu til veiða á ný strax að löndun lokinni.