Páll Jónsson GK í höfn í Grindavík. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK, landaði 111 tonnum í heimahöfn í Grindavík á mánudag. Línuskipið Sighvatur GK er síðan að landa um 120 tonnum í Hafnarfirði í dag. Benedikt Jónsson, skipstjóri á Páli Jónssyni, sagði að þar um borð væru menn þokkalega kátir. “Þetta voru sex lagnir og tiltölulega jöfn veiði. Framan af var skítabræla og hringlandi í veðrinu en það skánaði þegar leið á túrinn. Við vorum að veiða út af Sandgerði, beint vestur af Garðskaga. Þetta er kallað að vera á Stressinu. Um 50% aflans var þorskur og um 30% ýsa. Hitt var mest langa og karfi,” sagði Benedikt.

Aðalsteinn Rúnar Friðþjófsson, skipstjóri á Sighvati, sagði að túrinn hefði gengið vel en þó hefði verið bræla megnið af honum. ”Það eru viðbrigði að vera í svona bræluskít því bæði janúar og febrúar hafa verið svo góðir veðurfarslega. Við voru að veiðum yst í Jökuldýpinu og aflinn fékkst í fimm og hálfri lögn. Um 70% af aflanum var þorskur en síðan var þetta langa, ýsa og karfi. Þetta er allt góður millifiskur sem hentar vel í vinnsluna,” sagði Aðalsteinn Rúnar.