
Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa verið að veiðum fyrir austan land að undanförnu. Þau lönduðu bæði góðum afla í Neskaupstað í síðustu viku en síðan landaði Páll Jónsson tæpum 90 tonnum á Djúpavogi á mánudag og Sighvatur mun landa 110 tonnum í Grindavík í dag. Heimasíðan heyrði hljóðið í skipstjórunum og grennslaðist fyrir um gang veiðanna.
Jónas Ingi Sigurðsson, skipstjóri á Páli Jónssyni, var mjög ánægður með aflabrögðin. “Við vorum að veiðum á Héraðsflóanum og tókum þessi 90 tonn í fjórum lögnum. Þarna fæst fallegur þorskur sem hentar áreiðanlega mjög vel í vinnsluna. Við höfum verið hérna fyrir austan á haustin og það hefur gengið vel að fiska,” sagði Jónas Ingi.
Aðalsteinn Rúnar Friðþjófsson, skipstjóri á Sighvati, var einnig mjög sáttur við veiðina. ”Við hófum þennan túr á Vopnafjarðargrunni og færðum okkur síðan í Bakkaflóadýpið. Það var sannast sagna hörkuafli þarna því við fengum 110 tonn í þremur og hálfri lögn. Þarna fæst feikilega góður fiskur, mest þorskur. Fiskurinn er að ganga í síldina þarna fyrir austan. Það virðist vera síld allsstaðar á þessum slóðum og mikið líf. Þarna er til dæmis mikið af hvölum, bæði stórhveli og smærri hvalir. Reyndar skilst mér að það sé einnig síld með öllu Norðurlandi. Við þurfum að fara til Grindavíkur að landa því það kom upp bilun í flokkara hjá okkur sem þarf að gera við. Við gerðum það gott fyrir austan í fyrrahaust og allt bendir til að þetta haust verði ekki lakara,” sagði Aðalsteinn Rúnar.
Páll Jónsson hélt strax til veiða að löndun lokinni og Sighvatur mun einnig gera það þegar viðgerð á flokkaranum lýkur.