
Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, byrja vel að afloknu sumarstoppi. Páll Jónsson landaði í heimahöfn í Grindavík á mánudag eftir stuttan túr og Sighvatur er að landa í dag. Bæði skip lögðu áherslu á að veiða löngu og keilu. Heimasíðan ræddi við skipstjórana og létu þeir vel af sér. Jónas Ingi Sigurðsson, skipstjóri á Páli Jónssyni, sagði að túrinn hefði gengið vel en verið stuttur. “Lagnirnar voru einungis þrjár í túrnum en aflinn var 53 tonn svo við kvörtum ekki. Við byrjuðum á að leggja suður af Þjóðverjahólum en síðan voru tvær lagnir teknar í Skerjadýpinu. Þarna fékkst fínasta langa og keila og svolítill þorskur í bland. Veður var gott þannig að þetta gat ekki verið mikið betra,” sagði Jónas Ingi.
Óli Björn Björgvinsson, skipstjóri á Sighvati, sagði að þessi fyrsti túr eftir sumarstopp hefði verið mjög góður. ”Þetta er í reyndinni alveg glæsileg byrjun. Aflinn er rúm 100 tonn, langmest keila og langa. Við byrjuðum á að taka tvær lagnir vestan við Reynisdýpið, síðan var ein tekin austan við Reynisdýpið og ein á Kötlugrunni. Síðasta lögnin var svo tekin í kantinum vestan við Reynisdýpið. Þetta gekk eins og í sögu enda veðrið gott þar til í gærkvöldi þegar verið var að klára að draga. Við erum mjög sáttir við þetta start eftir sumarstoppið,” sagði Óli Björn.