Páll Jónsson GK landaði á Djúpavogi á mánudag. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, eru nú að veiðum austur af landinu. Páll Jónsson landaði á Djúpavogi á mánudag og Sighvatur er að landa þar í dag. Heimasíðan heyrði hljóðið í skipstjórunum.

Jónas Ingi Sigurðsson, skipstjóri á Páli Jónssyni, var ánægður með túrinn. “Þetta var góður túr. Aflinn var 114 tonn og fékkst hann í fjórum og hálfri lögn. Við tókum eina lögn í Hornafjarðardýpi og síðan þrjár og hálfa í Héraðsflóanum. Aflinn var langmest fallegur þorskur, en í Hornafjarðardýpinu skiptist hann til helminga, þorskur og langa. Veðrið var gott og við getum eiginlega ekki kvartað yfir neinu,” sagði Jónas Ingi.

Óli Björn Björgvinsson, skipstjóri á Sighvati, sagði að það hefði tekið langan tíma að sigla austur. ”Við vorum 38 – 39 tíma á leiðinni austur. Við fengum mótstraum og vorum svakalega lengi á leiðinni. Aflinn í túrnum var 80 tonn sem fékkst í fjórum lögnum. Fyrst var ein lögn tekin út af Hvítingum en þar var lítið að hafa. Önnur var tekin austur úr Hvalbak og þar var það sama sagan. Síðan kipptum við norður á Héraðsflóann og þar fékkst góður afli í tveimur lögnum. Um var að ræða hinn fallegasta þorsk,” sagði Óli Björn.