Sighvatur GK landar á Djúpavogi í dag. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa fiskað ágætlega að undanförnu. Páll Jónsson landaði á Djúpavogi á mánudag og Sighvatur er að landa þar í dag. Heimasíðan ræddi við skipstjórana og bað þá um að greina frá aflabrögðum og hvar væri veitt.

Benedikt Jónsson, skipstjóri á Páli Jónssyni, var ánægður með veiðiferðina en aflinn var 117 tonn. “Þetta var hreint út sagt helvíti fínn túr. Við byrjuðum á að taka tvær lagnir á Mýragrunni og síðan tvær á Hvítingunum. Allar þessar lagnir gáfu góðan afla. Síðasta lögnin var síðan tekin á Gaurasvæðinu og það var sannkölluð dúndurlögn sem gaf 34 tonn. Það er ekki annað hægt en að vera ánægður með veiðiferð eins og þessa og hér um borð eru allir kampakátir,” sagði Benedikt.

Afli Sighvats, sem er að landa í dag, er 100 tonn og sagði Aðalsteinn Rúnar Friðþjófsson skipstjóri að túrinn hefði verið fínn. ”Aflinn sem við erum með er góð blanda af ýsu og þorski. Menn eru mjög sáttir við aflabrögðin í túrnum en fjórar lagnir voru teknar við Díönuboða og ein á Gerpisgrunni. Það verður haldið til veiða á ný strax að löndun lokinni en hann spáir illa og gert er ráð fyrir að farið verði eitthvað norðureftir vegna veðursins,” sagði Aðalsteinn Rúnar.