Sighvatur GK kemur til löndunar í heimahöfn. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Línuskip Vísis, Sighvatur GK og Páll Jónsson GK, hafa nú bæði landað að lokinni síðustu veiðiferð fyrir sjómannadag. Sighvatur landaði um 63 tonnum í heimahöfn í Grindavík í gær og Páll Jónsson GK landaði þar rúmlega 80 tonnum í morgun. Heimasíðan ræddi við skipstjórana en þeir létu báðir vel af sér. Aðalsteinn Rúnar Friðþjófsson, skipstjóri á Sighvati, sagði að þeir hefðu tekið fimm lagnir í túrnum. “Við byrjuðum í Suðurkantinum við hliðina á Belgableyðunni en héldum síðan í Jökuldýpið. Aflinn var mest keila og karfi. Nú er sjómannadagshelgi framundan og allir kátir og glaðir,” sagði Aðalsteinn Rúnar.

Benedikt Jónsson, skipstjóri á Páli Jónssyni, hafði svipaða sögu að segja. ”Við vorum að veiðum suður á Fjöllum en það er um 70 mílur suðvestur af Reykjanestá. Aflinn hjá okkur var langmest keila. Við höfum ekki fengið keilu á þessum slóðum síðastliðin tvö eða þrjú ár þannig að keiluveiðin núna gladdi okkur mjög. Á þessum árstíma er öll áhersla lögð á að veiða keilu og löngu þannig að við erum sáttir við túrinn. Núna er áhöfnin klár í sjómannadaginn og ég veit að menn eiga eftir að skemmta sér vel yfir helgina,” sagði Benedikt.