Línuskipið Sighvatur GK kemur til löndununar í Grindavík.
Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Línuskipið Páll Jónsson GK landaði í heimahöfn í Grindavík á mánudag og Sighvatur GK landaði þar síðan í gær. Heimasíðan hafði samband við skipstjórana til að fá fréttir af veiðiferðunum. Benedikt Jónsson, skipstjóri á Páli Jónssyni, var mjög ánægður með túrinn. “Við vorum með 120 tonn, langmest af aflanum var þorskur en síðan var dálítið af ýsu og löngu með. Við fengum þetta í fimm lögnum. Fjórar voru teknar á Stressinu út af Sandgerði og ein í Hólakantinum 10 mílum sunnar. Það fékkst álíka mikið í öllum lögnunum. Í túrnum fengum við einn góðan dag hvað veður áhrærir en annars var bölvaður bræluskítur allan tímann. Við förum einn túr í viðbót áður en kemur að vélarupptekt og þá fá strákarnir góða pásu,” sagði Benedikt.

Óli Björn Björgvinsson, skipstjóri á Sighvati, var ekki alltof sáttur við aflabrögðin í veiðiferðinni. “Við lögðum áherslu á það í þessum túr að veiða annað en þorsk og það hefði mátt ganga dálítið betur. Aflinn var rúm 70 tonn og var mest af löngu í honum. Við byrjuðum á að taka eina lögn úti í Grindavíkurdýpisbotni, síðan var farið út á Fjöll og teknar tvær lagnir þar og þaðan á Grjóthrygg þar sem tekin var ein lögn. Við enduðum síðan á Eldeyjarbankanum og tókum þar tvær lagnir. Oft hefur fengist góður og blandaður afli á þessum miðum á þessum árstíma en nú var aflinn í minna lagi en hins vegar vel blandaður eins og til stóð,” sagði Óli Björn.

Bæði skip héldu á ný til veiða fljótlega eftir að löndun lauk.