Páll Jónsson GK. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Línuskip Vísis í Grindavík, Sighvatur GK og Páll Jónsson GK, leggja um þessar mundir áherslu á að veiða annað en þorsk og er athyglinni einkum beint að löngu og keilu. Sighvatur landaði um 80 tonnum í heimahöfn í gær og í morgun landaði þar Páll Jónsson 83 tonnum. Heimasíðan ræddi stuttlega við skipstjórana . Óli Björn Björgvinsson, skipstjóri á Sighvati, sagði að túrinn hefði einkennst af nuddi. „Þetta var óttalegt nudd. Það er stórstreymt núna og þorskurinn að hverfa. Við byrjuðum túrinn með tveimur lögnum úti á Skerjum sem eru suðvestur af Eldey. Í kjölfarið voru síðan teknar fjórar lagnir á Eldeyjarbankanum. Á þessum árstíma er reynt að forðast þorskinn og var aflinn blandaður, en mest var af löngu. Ég geri ráð fyrir að á næstunni verði í ríkum mæli sótt austureftir í þeirri von að langa og keila gefi sig þar,“ sagði Óli Björn.

Benedikt Jónsson, skipstjóri á Páli Jónssyni, sagði að þetta hefði verið fyrsti túr að lokinni vélarupptekt sem tók liðlega þrjár vikur. „Það var heldur lítið um að vera í þessum túr sem farinn var eftir nokkurt hlé. Við vorum úti á Jökultungu en þangað var haldið til að blanda aflann. Þetta voru sex lagnir og aflinn var frá 10 – 13 tonnum í lögn. Mest var af löngu og keilu í aflanum og menn voru ánægðir með það. Það var fínasta veður allan túrinn,“ sagði Benedikt.

Sighvatur hélt til veiða á ný í gærkvöldi og Páll Jónsson mun láta úr höfn í kvöld.