
Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa nýverið bæði landað blönduðum afla í heimahöfn í Grindavík. Páll Jónsson landaði 100 tonnum á sunnudag og Sighvatur landaði 85 tonnum í morgun. Afli beggja skipa er mest langa en síðan einnig ýsa, þorskur, keila og fleiri tegundir. Að lokinni löndun hófst vélarupptekt í Páli Jónssyni og er gert ráð fyrir að hún taki tvær til þrjár vikur. Benedikt Jónsson, skipstjóri á Páli, sagði að túrinn hefði gengið þokkalega og nú fengi áhöfnin gott frí á meðan skipið væri í vélarupptektinni. ”Við fengum aflann í fimm lögnum vestur á Jökultungu og þar fengum við þessa skemmtilegu blöndu. Þetta var fínasta kropp og langan sem þarna fékkst var gríðarstór og flott. Nú munu strákarnir á Páli fá gott frí á meðan vélarupptektin fer fram og ég er viss um að þeir munu njóta þess vel,” sagði Benedikt.
Óli Björn Björgvinsson, skipstjóri á Sighvati, var ánægður með hversu vel tókst að blanda aflann í túrnum. ”Aflinn var tekinn í fimm og hálfri lögn. Fyrst var veitt úti í Jökultungu en í lokin var hálf lögn tekin á Eldeyjarbankanum. Aflinn var mjög blandaður, mest af löngu en síðan einnig keila, karfi, þorskur og ýsa. Veðrið var gott megnið af túrnum. Haldið verður á ný til veiða í kvöld,” sagði Óli Björn.