Línuskipið Páll Jónsson GK landaði í Grindavík á mánudaginn.
Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Línuskip Vísis hafa bæði landað góðum afla í Grindavík í vikunni. Páll Jónsson GK landaði á mánudaginn 110 tonnum og Sighvatur GK landaði 113 tonnum ídag. Heimasíðan fékk fréttir hjá skipstjórunum. Benedikt Jónsson, skipstjóri á Páli Jónssyni, var mjög sáttur við veiðina. “Þetta gekk bara vel þrátt fyrir að væri leiðinda kaldaskítur allan túrinn. Rúmlega helmingur aflans var þorskur og þetta var sannarlega boltaþorskur. Að auki var þetta ýsa og langa. Við byrjuðum á tveimur lögnum út af Jökultungu, síðan var tvisvar lagt í Kolluálnum og síðasta lögnin var í Jökuldýpinu. Aflinn var frá 15 tonnum og upp í 25 tonn í lögn. Þrátt fyrir leiðindaveður gekk vel að leggja og draga og það er engin ástæða til að kvarta,” sagði Benedikt.

Óli Björn Björgvinsson, skipstjóri á Sighvati, var einnig ánægður með veiðina. ”Þetta var fínasti túr. Aflinn var mest stór og góður þorskur og síðan ýsa og langa. Við vorum á Eldeyjarbankanum allan túrinn. Lengst af var kaldafýla og um tíma slæm bræla en veðrið truflaði þó ekki veiðina. Aflinn fékkst í fimm og hálfri lögn ,” sagði Óli Björn.

Páll Jónsson hélt til veiða á ný fljótlega eftir að löndun lauk á mánudag og Sighvatur mun halda til veiða á ný í kvöld.