Landað úr Páli Jónssyni GK. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Línuskip Vísis hafa bæði nýverið landað þokkalegasta afla í heimahöfn í Grindavík. Sighvatur GK landaði um 80 tonnum í gær og var Aðalsteinn Rúnar Friðþjófsson skipstjóri ánægður með túrinn. “Nú er hafin sumarveiði og þá er ekki jafn mikill afli og yfir vertíðartímann en þetta var engu að síður þokkalegasti túr. Aflinn fékkst í fimm og hálfri lögn. Við byrjuðum á Belgableyðunni, síðan var haldið á Kóralhornið og endað við Melsekk. Uppistaða aflans var keila og langa og síðan var dálítill karfi með. Þetta var virkilega fínn fiskur. Það var fínasta veður allan túrinn og ekki yfir neinu að kvarta,” sagði Aðalsteinn Rúnar.

Sighvatur hélt á ný til veiða í gærkvöldi.

Í morgun var síðan landað um 70 tonnum úr Páli Jónssyni GK. Benedikt Jónsson skipstjóri var sáttur við aflabrögðin þegar tekið er tillit til aðstæðna og kvótastöðu. ”Það er engin veisla í veiðum á þessum árstíma og svo er kvótinn farinn að dragast saman hjá okkur en við fengum hins vegar flottan fisk í túrnum. Aflinn var mest keila og langa. Ég held að meðalvigtin á löngunni hafi verið um 10 kg. og meðalvigt á keilunni um 3 kg. Það er mjög gott. Við vorum einnig með svolítið af ýsu og dálítið af þorski. Við byrjuðum á að fara austur í svonefnt Ingólfshöfðahólf. Hólfið var lokað í yfir 20 ár en var opnað nýlega. Það er fyrirhafnarmikið að veiða í hólfinu. Þar er lagt í stubbum undan straumi og botninn er mjög erfiður. Lagnirnar í túrnum voru fjórar og hálf. Tvær og hálf voru teknar í hólfinu og síðan tvær á Kötlugrunni. Á Kötlugrunni fékkst góður afli en það var þó heldur mikið af löngu í aflanum. Annars erum við á Páli Jónssyni hinir hressustu,” sagði Benedikt.

Páll Jónsson hledur á ný til veiða í kvöld.