
Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa verið að veiðum fyrir austan og suðaustan land að undanförnu. Páll Jónsson landaði 104 tonnum í Grindavík sl. mánudag og Sighvatur er að landa þar 105 tonnum í dag. Heimasíðan ræddi við skipstjórana og spurði þá frétta af veiðiskapnum. Jónas Ingi Sigurðsson, skipstjóri á Páli Jónssyni, sagði að hjá þeim hefði verið um sex daga túr að ræða og þar af hefðu tveir dagar farið í keyrslu. ”Við fengum aflann í fjórum lögnum. Fyrst var lagt í Sláturhúsinu og síðan voru þrjár lagnir teknar við Hvalbakinn, á Gauraslóðinni. Þarna var fínasta veiði og svipaður afli fékkst í öllum lögnunum. Aflinn var að mestu þorskur og ýsa. Í túrnum var gott veður fyrsta sólarhringinn en síðan var kaldafýla,” sagði Jónas Ingi.
Aðalsteinn Rúnar Friðþjófsson, skipstjóri á Sighvati, var ánægður með veiðiferðina. ”Við fengum aflann í fjórum og hálfri lögn. Við byrjuðum á að taka þrjár lagnir í Reyðarfjarðardýpinu en síðan var flúið í Meðallandsbugtina vegna veðurs og þar tekin ein og hálf lögn. Þetta gekk vel og við höfum verið óvenju mikið fyrir austan að undanförnu enda hefur aflast þar ágætlega. Aflinn var að mestu þorskur og einnig ýsa og langa. Það er komin gota í fiskinn þarna austurfrá og við urðum varir við loðnu í Reyðarfjarðardýpinu. Við sáum loðnu í sjónum og eins í fiskinum,” sagði Aðalsteinn Rúnar.
Páll Jónsson hélt á ný til veiða á mánudagskvöld og Sighvatur mun halda til veiða að löndun lokinni í kvöld.