
Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa nýverið landað góðum afla á Djúpavogi. Hafa þau verið að veiðum fyrir austan og suðaustan landið. Páll landaði á sunnudag og Sighvatur í gær. Heimasíðan heyrði í Benedikt Jónssyni skipstjóra á Páli og Óla Birni Björgvinssyni skipstjóra á Sighvati og spurði út í veiðarnar. Benedikt sagði að vel hefði gengið að veiða en langt hefði verið að fara á miðin. “Við lögðum af stað frá Hafnarfirði og keyrðum austur á Mýragrunn. Þar hófust veiðarnar og lagt var tvisvar. Aflinn var býsna góður og var ýsa um helmingur hans. Þarna var erfitt að veiða vegna veðurs auk þess sem stórstreymt var og þess vegna færðum við okkur í Norðfjarðardýpið og tókum tvær lagnir þar. Aflinn var ágætur en hann var mest þorskur. Síðan var haldið til löndunar á Djúpavogi og þar fóru 74 tonn á land. Aflinn var að mestu þorskur og ýsa. Í reyndinni var þetta fínasti túr miðað við að lagnirnar voru einungis fjórar og stímið tók langan tíma,” sagði Benedikt.
Óli Björn á Sighvati hafði svipaða sögu að segja. ”Við héldum austur eftir og hófum veiðar ofarlega í Breiðamerkurdýpinu. Þar voru teknar tvær lagnir og aflinn sem fékkst var blandaður. Vegna veðurs og straums færðum við okkur í Norðfjarðardýpið og þar var skárra að eiga við þetta þó veðrið væri fjarri því að vera gott. Í Norðfjarðardýpinu voru teknar þrjár lagnir og aflinn þar var mest þorskur. Leiðin lá síðan til Djúpavogs þar sem við lönduðum 96 tonnum. Við getum vart verið ósáttir við aflabrögðin en það er heldur þreytandi að standa í þessu í skítaveðri allan tímann auk þess sem stærsti straumur er um þetta leyti,” sagði Óli Björn.
Bæði skip héldu til veiða á ný fljótlega eftir að löndun lauk.