
Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa bæði landað góðum afla í vikunni í heimahöfn í Grindavík. Skipin voru að veiðum úti fyrir suðaustur- og suðurlandinu. Páll Jónsson landaði á mánudaginn og Sighvatur í morgun. Heimasíðan ræddi stuttlega við skipstjórana og fékk fréttir af veiðinni.
Benedikt Jónsson á Páli Jónssyni sagði að leiðinlegt veður hefði verið allan túrinn. “Við fengum 90 tonn í túrnum í fimm lögnum en veðrið var ósköp þreytandi. Það var mikill veltingur og það fiskast gjarnan ekki vel á línu í miklum veltingi. Við byrjuðum á að reyna við ýsu á Gaurasvæðinu en við vorum engan veginn sáttir við þá ýsu sem þar fékkst. Við þurfum enn að bíða eitthvað eftir stórri og fallegri ýsu. Gömlu mennirnir sögðu að ýsan kæmi ekki fyrr en gránaði í fjöllin. Við færðum okkur í Hornafjarðardýpið og tókum síðan síðustu lögnina á Síðugrunni. Við segjum að þetta hafi verið hálfgerður skraptúr því innan við helmingur aflans var þorskur. Síðan var þetta helst langa, keila, ýsa og reyndar ýmislegt fleira,” sagði Benedikt.
Aðalsteinn Rúnar Friðþjófsson á Sighvati var sáttur við aflabrögðin. ”Við vorum með 110 tonn í fimm lögnum og erum sáttir við það. Meira en helmingur aflans var langa en það var einnig þorskur, ýsa, keila og keilubróðir í honum. Meðal annars fengum við ein 16 kör af náskötu og þær voru svo sannarlega stórar og miklar. Við fengum góða nýfrysta síld frá Neskaupstað í beitu og hún virkaði virkilega vel. Veiðarnar hófust í Breiðamerkurdýpinu, síðan færðum við okkur í Meðallandsbugtina og lögðum einnig utan í Ingólfshöfðahrauninu og þar fengum við einmitt skötuna. Fyrstu tveir dagar túrsins voru bræludagar, síðan fengum við gott veður um tíma og loks aftur brælu,” sagði Aðalsteinn Rúnar.