Barði NK siglir inn Norðfjörð í morgun með 1.100 tonn af loðnu. Ljósm. Smári Geirsson

Vinnsla á loðnu gengur vel í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Lokið var við að vinna úr Berki NK í morgun og skömmu síðar sigldi Barði NK inn Norðfjörð með 1.100 tonn. Heimasíðan ræddi stuttlega við Þorkel Pétursson skipstjóra á Barða og innti hann frétta af veiðunum. ”Við fengum þessi 1.100 tonn í þremur köstum en aflinn var frá 290 til 430 tonn í kasti. Loðnan gengur býsna hratt vestur með suðurströndinni núna. Við hófum veiðar við Skarðafjöruna í túrnum og enduðum vestan við Alviðru. Þetta er fallegasta loðna sem veiðist núna. Það eru 32 – 34 loðnur í kílóinu og hrognafyllingin er 15%. Hrognafyllingin þýðir það að Japansfrysting er að nálgast. Það er heilmikil traffík á loðnumiðunum og það þarf að sýna tillitssemi við slíkar aðstæður. Við urðum víða varir við loðnutorfur á leiðinni austur til löndunar þannig að það er töluverð loðna á ferðinni. Hér um borð eru allir glaðir og ánægðir með vertíðina. Það er í reyndinni ótrúlegt hvað lítill fiskur getur haft jákvæð áhrif á menn,” sagði Þorkell.