Bergmálmælir Barða NK var kvarðaður fyrir loðnuleit þann 22. desember sl.
Ljósm. Helgi Freyr Ólason

Hafrannsóknastofnun er nú að undirbúa loðnuleit en hún fer venjulega fram í upphafi hvers árs. Rannsóknaskipið Árni Friðriksson mun láta úr höfn snemma á nýju ári og kanna hve austarlega loðnan er komin en síðan mun heildarmæling á loðnunni hefjast síðar í mánuðinum. Alls munu fimm skip taka þátt í heildarmælingunni og eru það rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Þórunn Þórðardóttir og veiðiskipin Barði, Heimaey og Polar Ammassak.

Heimasíðan ræddi við Theodór Haraldsson skipstjóra á Barða og spurði hvort þátttaka í loðnuleit væri ekki spennandi verkefni. “Jú, svo sannarlega. Það skiptir svo ótrúlega miklu máli að það finnist loðna og allir vonast eftir að árangurinn verði jákvæður og unnt verði að bæta við þessa tæplega 44.000 tonna ráðgjöf sem þegar hefur verið gefin út. Það veitir ekki af að fá góðan loðnukvóta á tímum niðurskurðar í kvóta bæði í kolmunna og makríl. Við gerum ráð fyrir að halda til leitar um miðjan janúar og reikna má með að leitin taki um vikutíma eða svo. Áður en leitin hefst eru bergmálsmælar skipanna kvarðaðir og mælirinn í Barða var kvarðaður þann 22. desember sl. þannig að við erum nánast tilbúnir að halda til leitar þegar kallið kemur,” sagði Theodór.