
Loðnuleit er að hefjast af fullri alvöru en alls taka fimm skip þátt í henni. Um er að ræða hafrannsóknaskipin Árna Friðriksson og Þórunni Þórðardóttur ásamt veiðiskipunum Barða NK, Heimaey VE og Polar Ammassak. Heimasíðan hafði samband við Theodór Haraldsson skipstjóra á Barða og spurði hann nánar um fyrirhugaða leit. ”Þórunn Þórðardóttir mun hafa látið úr höfn fyrir sunnan í gær og Árni Friðriksson mun halda til leitar frá Akureyri. Öll þrjú veiðiskipin eru í Neskaupstað og gert er ráð fyrir að þau leggi af stað í dag klukkan eitt. Það verða þrír starfsmenn Hafrannsóknastofnunar um borð í Barða og einnig um borð í Heimaey. Veðurútlit er gott næstu daga en gert er ráð fyrir að leitin muni standa yfir í fimm til sex daga. Upp á síðkastið hafa borist fréttir frá togurum um loðnu bæði austur og norðaustur af landinu og auðvitað er það jákvætt. Við munum halda til leitar bjartsýnir og vonandi mun leitin ganga vel og skila góðum árangri. Þetta er virkilega spennandi,” sagði Theodór.
Grænlenska skipið Polar Amaroq hóf loðnuveiðar austur af landinu um klukkan fjögur í nótt. Heimasíðan sló á þráðinn til Geirs Zoёga skipstjóra um klukkan tíu og spurði frétta. ”Við erum að dæla núna eftir fyrsta hol en það var togað í eina fimm tíma. Aflinn er um 250 tonn og það er flott byrjun. Við erum austur af Seyðisfjarðardýpinu, um 50 til 60 mílur út af Norðfjarðarhorni. Hér er talsvert að sjá og góð loðnulykt. Við gerum ráð fyrir að landa í Neskaupstað og við gætum hugsanlega verið komnir að landi í fyrramálið. Ég veit að menn í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar bíða spenntir eftir að fá loðnu til vinnslu. Loðnan virðist vera stór og falleg og örugglega úrvalshráefni. Hér um borð eru menn kátir og glaðir og við höfum verið að fá loðnufréttir að norðan. Vonandi mun loðnuleitin sem nú er að fara af stað skila góðum árangri,” sagði Geir.