
Ísfisktogarinn Birtingur NK landaði um 60 tonnum í heimahöfn í Neskaupstað í gær. Heimasíðan ræddi stuttlega við Hjálmar Ólaf Bjarnason skipstjóra og spurði fyrst um gang veiðanna. ”Þessi 60 tonn sem við vorum með voru mest þorskur og síðan helst ýsa og karfi. Við hófum túrinn á Gerpisflakinu en vorum síðan mest úti á Þórsbanka og Verkamannabanka. Staðreyndin er sú að það mætti vera meira af fiski á ferðinni hér fyrir austan land, en oft hefur aflast vel á miðum hér eystra á þessum árstíma. Við leituðum talsvert en það var engin kraftveiði að undanskildu einu holi. Veður var fínt allan túrinn og ekki hægt að kvarta undan neinu í þeim efnum,” sagði Hjálmar Ólafur.
Birtingur hélt á ný til veiða síðdegis í gær.