
Ísfisktogarinn Birtingur NK kom til Neskaupstaðar í morgun að aflokinni veiðiferð. Aflinn var 65 tonn, mest þorskur og ýsa. Heimasíðan ræddi við Einar Ólaf Ágústsson skipstjóra og sagði hann að svo sannarlega mætti vera meiri veiði um þessar mundir. ”Við byrjuðum túrinn á Mýragrunni og síðan var haldið á Ingólfshöfðann en þar var heldur tregt. Þá færðum við okkur austur á Fót en þar var sama sagan. Við fengum eitt og eitt ágætis hol en almennt var þetta heldur slakt. Athyglisvert er að hér fyrir austan eru strandveiðibátar að fá fínasta afla þennig að það er fiskur á ýmsum stöðum upp við landið. Við reiknum með að halda á ný til veiða síðar í dag en óvíst er hvert stefnan verður tekin,” sagði Einar Ólafur.