
Beitir NK kom til Neskaupstaðar í morgun að lokinni veiðiferð í Smuguna. Afli skipsins er 500 tonn, þar af um 350 tonn makríll. Skipið hélt til makrílveiða eftir að fréttir bárust um góðan afla í Smugunni en þegar komið var á miðin reyndist veislunni lokið. Tómas Kárason skipstjóri segir að lítið hafi verið að sjá eftir að þeir hófu veiðar. ”Við tókum ein sex hol en fengum heldur lítið. Mest var það 110 tonn í holi. Þetta var hins vegar fallegur fiskur sem þarna fékkst, allt makríll vel yfir 500 grömm. Makríllinn virðist vera að hverfa inn í norsku lögsöguna og síðan er erfiðara að veiða hann þegar hausta tekur. Hann verður mjög styggur. Það var hörkuveiði áður en við komum en þetta er býsna fljótt að breytast. Skipin voru að tínast á brott þegar við fórum og allir virtust meta það svo að veiði á makríl væri lokið á þessum slóðum að sinni. Þarna voru bæði færeysk og rússnesk skip. Á landleiðinni tókum við eitt síldarhol hérna úti í Seyðisfjarðardýpinu og fengum 150 tonn af fallegri síld þannig að heildaraflinn í túrnum er 500 tonn,” sagði Tómas.
Fiskiðjuver Síldarvinnslunnar mun að sjálfsögðu vinna bæði makrílinn og síldina úr Beiti og síðan er gert ráð fyrir áframhaldandi síldarvinnslu.