
Beitir NK kom til Neskaupstaðar í morgun með 180 tonn af makríl úr norskri lögsögu. Vinnsla á aflanum hófst í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar strax og skipið kom. Reiknað er með að þetta sé síðasti makrílfarmurinn sem berst til Neskaupstaðar á vertíðinni. Ólafur Gunnar Guðnason skipstjóri sagði að veiðin í norsku lögsögunni hefði verið sáralítil. “Við fengum svolítið þegar við vorum að veiða í Börk fyrst eftir að komið var í norsku lögsöguna en síðan var þetta sáralítið. Það var lengi dregið og við vorum að fá 30 til 60 tonn í holi. Það var mikið leitað en lítið fannst. Nú held ég að sé kominn tími til að huga að síldinni og kanna hvar hún heldur sig,” sagði Ólafur Gunnar.
Börkur NK hélt til síldveiða síðdegis í gær. Í nótt var leitað í Seyðisfjarðardýpinu en þar var lítið að sjá.