
Makrílvinnsla er hafin á ný í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Grænlenska skipið Polar Ammassak kom í nótt með 770 tonn og hófst vinnsla í morgun. Polar Amaroq er einnig kominn og mun hann landa liðlega 100 tonnum í vinnsluna en annars er hann fyrst og fremst með makríl sem var frystur um borð. Geir Zoёga, skipstjóri á Polar Amaroq segir að makrílvertíðin hjá grænlensku skipunum hafi gengið einstaklega vel. ”Það er langt síðan ég hef séð svona mikið af makríl og í sumar. Að undanförnu hefur verið hörkuveiði í Smugunni nærri norsku línunni. Við á Polar Amaroq og Polar Ammassak höfum verið að partrolla í sumar og það hefur gengið eins og í sögu. Við eigum einhver tonn eftir af kvótanum og líklega verður reynt að ná þeim. Ég get bara sagt að þessi makrílvertíð er langt yfir væntingavísitölunni,” sagði Geir.
Geir Sigurpáll Hlöðversson, rekstrarstjóri fiskiðjuversins, sagði að fiskurinn úr Polar Ammassak liti afar vel út. ”Meðalþyngdin er um 550 grömm og það verður allt heilfryst. Nú er Beitir komin á makrílmiðin og Vilhelm Þorsteinsson á leiðinni. Veiðin fór rólega af stað hjá Beiti en hann er að leita. Veiðin hefur verið misjöfn en inn á milli hafa komið afar góð skot. Hér eru menn mjög ánægðir með að fá meiri makríl til vinnslu og síðan er vinnsla á síld framundan,” sagði Geir Sigurpáll.