
Ljósm. Guðlaugur Björn Birgisson
Um síðustu helgi var frystur makríll úr Beiti NK í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað en skipið kom með 650 tonn úr Smugunni. Margrét EA kom síðan með tæp 500 tonn sl. nótt og hófst þegar vinnsla á farminum. Heimasíðan ræddi við Odd Einarsson, yfirverkstjóra í fiskiðjuverinu, og spurði hann um gang mála. “Það hefur gengið afar vel að vinna makrílinn á vertíðinni og skipin hafa skilað úrvalshráefni á land. Hér er búið að taka á móti um 5.600 tonnum af makríl það sem af er. Það hefur komið hlé af og til í makrílvinnsluna og hléin höfum við meðal annars nýtt til að frysta kolmunna sem Bjarni Ólafsson AK hefur veitt. Við höfum nú tekið á móti 1.300 tonnum af kolmunna til frystingar og Bjarni Ólafsson er reyndar væntanlegur með kolmunnafarm í kvöld. Makríllinn hefur að langmestu leyti verið heilfrystur en einnig hefur dálítið verið hausað og smávegis flakað. Úr makrílnum hafa verið framleiddar verðmætar afurðir og eru menn sallaánægðir með hvernig framleiðslan hefur gengið. Nú fer að líða að lokum makrílvertíðar og menn eru farnir að hyggja að síldarvertíð sem hefst síðar í þessum nýbyrjaða mánuði,” sagði Oddur.
