
Í mörgum sjávarplássum á landinu er fólki boðið upp á sjóferð á sjómannadaginn. Í Neskaupstað er löng hefð fyrir slíkri hópsiglingu og er hún vel sótt. Að þessu sinni var siglt á þremur Síldarvinnsluskipum og var fjölmenni um borð í þeim. Þriggja ára hefð er fyrir því að börnum er boðið að fara í björgunarvesti þegar gengið er um borð í skipin og er það yfirleitt þegið. Það er Síldarvinnslan sem festi kaup á vestunum en Björgunarsveitin Gerpir hefur umsjón með þeim og annast úthlutun. Páll Freysteinsson, öryggisstjóri Síldarvinnslunnar, segir að tilkomu vestanna hafi verið tekið fagnandi enda sé fólk ávallt jákvætt þegar öryggi er aukið.
Að þessu sinni var boðið upp á siglingu frá Grindavík á línuskipum Vísis, Sighvati GK og Páli Jónssyni GK, og nutu um 370 manns siglingarinnar með þeim. Í Grindavík var í fyrsta sinn gefinn kostur á að born væru í björgunarvestum í siglingunni og afhentu fulltrúar Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar vestin á bryggjunni áður en farið var um borð. Það er Vísir, dótturfélag Síldarvinnslunnar, sem hefur fest kaup á vestunum en þau eru síðan í umsjá Björgunarsveitarinnar á staðnum. Hávarður Gunnarsson, öryggisstjóri Vísis, sagði að fólk hefði tekið því afar vel að boðið væri upp á vesti fyrir bornin og reyndar talið slíkt til fyrirmyndar. Þá sagði hann að ljóst væri að kaupa þyrfti fleiri vesti því ekki hefði verið unnt að fullnægja eftirspurn eftir vestunum.


Ljósm. Hávarður Gunnarsson
