Fjölnir GK fór einungis í níu róðra í marsmánuði.
Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Krókaaflamarksbáturinn Fjölnir GK fór aðeins í níu róðra í marsmánuði og var aflinn í mánuðinum 74 tonn. Það var tvennt sem orsakaði að mars reyndist Fjölnismönnum erfiður; loðnugengdin og veðurfarið. Heimasíðan ræddi við skipstjórana á Fjölni, þá Kristinn Arnberg Kristinsson og Júlíus Magnús Sigurðsson og spurði þá um nýliðinn mánuð. Kristinn sagði að mars hefði strítt þeim Fjölnismönnum mikið. “Þetta er versti mars sem ég man eftir. Veiðin datt alveg niður þegar loðnan birtist og síðan kom hver óveðurslægðin annarri verri. Það virtist hver loðnugusan á fætur annarri ganga yfir okkar hefðbundnu mið og þegar loðnan stendur fiskinum til boða steinhættir hann að líta við krókunum. Veðrið var okkur afskaplega óhagstætt. Fjölnir er 30 tonna bátur og hið slæma veðurfar í mars kom margoft í veg fyrir að við gætum róið þó stærri línuskip gætu verið að. Stundum eru aðstæður okkur ekki í hag en þá þurfa menn að halda sinni ró og muna að batnandi tíð er á næsta leiti,” sagði Kristinn.

Júlíus Magnús tók undir með félaga sínum og sagði að loðnugengdin og veðurfarið hefði verið þeim Fjölnismönnum óhagstætt. ”Marsmánuður reyndist okkur erfiður en ekki má gleyma því að bæði janúar og febrúar voru okkur í reynd hagstæðir. Í sannleika sagt hefur marsmánuður oft verið bátum eins og okkar erfiður. Framundan er hagstæðari tíð en hafa verður í huga að hrygningarstopp í þessum mánuði hefur einnig veruleg áhrif á okkur. Hrygningarstopp hófst þann 1. apríl en þá var lokað út á 4 mílur. Síðan hefst stóra stoppið þann 11. apríl og þá er lokað langt út alveg til 21. apríl. Segja má að í stóra stoppinu sé okkar hefðbundna veiðislóð lokuð og þá róa ekki bátar eins og okkar nema í bongóblíðu. Við munum vera rólegir á meðan þetta gengur yfir og minnast þess að kvótastaðan hjá okkur er góð og það bíða okkar næg verkefni,” sagði Júlíus Magnús.