Börkur NK kom til Neskaupstaðar með makríl úr Smugunni í gærmorgun.
Ljósm. Smári Geirsson

Börkur NK kom til Neskaupstaðar í gærmorgun með 860 tonn af makríl úr Smugunni. Gert er ráð fyrir að lokið verði við að vinna aflann í kvöld. Heimasíðan sló á þráðinn til Hjörvars Hjálmarssonar skipstjóra og spurði fyrst hvernig veiðin hefði gengið og hvernig fiskurinn væri. ”Það er ekki annað hægt að segja en að veiðin hafi gengið vel. Aflinn fékkst í þremur holum. Við tókum tvö hol og síðan fengum við afla úr einu holi frá Vilhelm Þorsteinssyni EA. Það var ekki lengi dregið eða frá tæplega fjórum tímum og upp í tæplega sex tíma. Það var fínasta veður allan tímann sem verið var á miðunum. Fiskurinn sem þarna fæst er hinn fallegasti og mest af honum er á bilinu 450 – 470 grömm að þyngd. Við vorum að veiðum alveg við norsku línuna um 400 mílur frá Norðfjarðarhorni. Það tók okkur um einn og hálfan sólarhring að sigla frá miðunum til Neskaupstaðar. Þarna voru allmörg skip að veiðum og voru þau íslensk, grænlensk og rússnesk. Rússarnir fullyrða að meira sé að sjá af makríl í Smugunni í ár en í fyrra og sum rússnesku skipanna eru búin með makrílkvótann sinn og farin að huga að síld. Ég held að menn séu bara mjög glaðir og hressir með upphaf þessarar makrílvertíðar enda byrjar veiðin ljómandi vel,” sagði Hjörvar.