
Síðustu dagana hafa Vísisskipin hvert á fætur öðru landað í heimahöfn í Grindavík. Togarinn Jóhanna Gísladóttir GK landaði á sunnudag, línuskipið Páll Jónsson GK landaði á mánudag og línuskipið Sighvatur GK í dag. Öll voru skipin með fullfermi og var gott hljóð í skipstjórunum. Smári Rúnar Hjálmtýsson, skipstjóri á Jóhönnu Gísladóttur var ánægður með gang veiðanna að undanförnu. ”Við lönduðum á sunnudag og aflinn var þorskur og ýsa. Við höfum verið í Lónsbugtinni þrjá síðustu túrana og allt hefur gengið vel í veðurblíðu. Í gær fór skipið í slipp í Reykjavík og það verður í slippnum í einhverja daga,” sagði Smári Rúnar.
Jónas ingi Sigurðsson, skipstjóri á Páli Jónssyni GK, var mjög ánægður með aflabrögðin. ”Aflinn var 120 tonn eftir einungis fjórar lagnir. Við byrjuðum í Meðallandsbugtinni og þar var mjög góð þorskveiði. Síðan færðum við okkur á Ingólfshöfðann og þar fékkst keila og langa. Þorskur er 54% af farminum og það er bara vel sloppið en menn eru alltaf að reyna að forðast að fá of mikinn þorsk. Þessi túr var hátt í vika en það var býsna langt stím fram og til baka,” sagði Jónas Ingi.
Páll Jónsson hélt til veiða á ný strax eftir löndun og var stefnan tekin austur fyrir Eyjar.
Sighvatur GK kom til löndunar í morgun og heyrði heimasíðan hljóðið í Óla Birni Björgvinssyni skipstjóra. Fyrst var spurt um aflann. ”Aflinn var fínn eða um 115 tonn. Þetta var mest langa og svo keila. Við lögðum fyrst í kantinum vestan við Surtsey en lokalögnin var tekin í fjörunni austan við Grindavík og þar fékkst mest þorskur. Reyndar var hörkuveiði þarna í fjörunni. Hér um borð eru menn brattir eftir góðan túr og það verður haldið til veiða á ný í kvöld,” sagði Óli Björn.