
Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa bæði verið að veiðum austur af landinu að undanförnu og hefur veiðin verið góð. Páll jónsson landaði rúmlega 100 tonnum í Grindavík á mánudag og Sighvatur landaði þar 108 tonnum í gær. Aflinn var að mestu þorskur. Heimasíðan ræddi við skipstjórana og fékk fréttur af gangi veiðanna.
Jónas Ingi Sigurðsson, skipstjóri á Páli Jónssyni, var ánægður með aflabrögðin. “Við vorum að veiðum fyrir austan. Það voru teknar tvær lagnir á Glettinganesgrunni og síðan tvær í Héraðsflóanum. Það er mesta veiðivonin fyrir austan um þessar mundir og það er síldin sem á stóran þátt í því. Síldinni fylgir stór og fallegur fiskur. Veður var ágætt mest allan túrinn, við fengum þó örlítinn kalda í restina,” sagði Jónas ingi.
Óli Björn Björgvinsson, skipstjóri á Sighvati, var einnig ánægður með veiðina. ”Þetta voru fjórar lagnir. Þær voru teknar í Héraðsflóanum og í Hattabúðinni. Aflinn var nánast eingöngu þorskur og hann er hinn fallegasti. Veður var gott að undanskildum einum sólarhring en þá fengum við haugabrælu. Siglingin suður til Grindavíkur tók rúmlega 40 tíma og það þykir ansi langt landstím, en að öðru leyti var þetta hinn fínasti túr,” sagði Óli Björn.