
Krókaaflamarksbáturinn Fjölnir GK hefur verið að gera það gott að undanförnu. Afli bátsins í maímánuði var 280 tonn og það er metmánuður hjá þeim Fjölnismönnum. Fyrri helming mánaðarins var veitt frá heimahöfn í Grindavík en um miðjan mánuð var haldið austur fyrir land og oftast landað í Neskaupstað en einnig á Djúpavogi. Heimasíðan ræddi við Júlíus Magnús Sigurðsson skipstjóra og spurði hann nánar út í gang veiðanna. “Ég var með bátinn fram undir miðjan maí en þá tók Kristinn Arnberg Kristinsson við sem skipstjóri. Ég tók síðan aftur við í lok mánaðarins. Maímánuður var virkilega góður og hann er metmánuður hjá okkur. Vel gekk að veiða syðra fyrri hluta mánaðarins og síðan hefur afli verið mjög góður hérna fyrir austan. Við höfum upp á síðkastið mest verið að veiðum í Gullkistunni en hún er um það bil 40 mílur austur af Norðfjarðarhorni. Í síðasta róðrinum vorum við á Hornflákanum og þar veiddist vel. Við erum búnir að fara í fjóra róðra nú í júnímánuði frá Neskaupstað og aflinn er rúmlega 50 tonn. Í síðasta róðrinum, sem farinn var á föstudaginn fyrir sjómannadag, komum við að landi með 17 tonn eða fullan bát. Við á Fjölni erum hinir hressustu og verðum hér fyrir austan fram í júlí en þá á báturinn að fara í slipp. Við reiknum með að koma aftur austur eftir slippinn og róa frá Neskaupstað í einhvern tíma,” sagði Júlíus Magnús.