Vilhelm Þorsteinsson EA að landa makríl í Neskaupstað. Ljósm. Smári Geirsson

Vilhelm Þorsteinsson EA kom til Neskaupstaðar í gær með 700 tonn af makríl. Löndun og vinnsla hófst strax eftir að lagst var að bryggju. Heimasíðan ræddi við Guðmund Þ. Jónsson skipstjóra og spurði um gang veiðanna. ”Það hefur verið mikið leitað upp á síðkastið og við fáum veiðiskot annað slagið. Við erum í veiðisamstarfi með Margréti EA, Berki NK og Beiti NK og aflinn sem við erum með núna er frá okkur og þessum þremur skipum. Þegar þessi afli fékkst voru skipin að fá 100 til 200 tonn í holi og það var dregið í eina sex tíma. Þetta skot kom skammt frá norsku línunni. Það eru ekki mörg skip að makrílveiðum á þessum slóðum núna en þau eru íslensk og færeysk auk nokkurra Rússa. Eftir að við lögðum af stað í land var svolítil veiði en það dró fljótt úr henni. Það er vissulega fyrirhafnarmikið að ná í makrílinn en sá fiskur sem fæst er virkilega fallegur,” sagði Guðmundur.

Geir Sigurpáll Hlöðversson, rekstrarstjóri fiskiðjuvers Síldarvinnslunnar, sagði að vel gengi að vinna makrílinn úr Vilhelm Þorsteinssyni. ”Við erum að heilfrysta makrílinn og það gengur vel. Áður en við hófum vinnslu á þessum makrílfarmi vorum við að vinna kolmunna úr Bjarna Ólafssyni AK og það gekk einnig vel. Það hefur verið einhver veiði á makrílmiðunum núna því Börkur NK er á landleið með 650 tonn og það er von á honum til hafnar í nótt,” sagði Geir Sigurpáll.