
Börkur NK kom í morgun til Neskaupstaðar með 2.530 tonn af kolmunna sem fengust í Rósagarðinum og á Þórsbankanum. Þessi kolmunnaveiði innan íslenskrar lögsögu er mikilvæg og skiptir miklu máli þegar rætt er um nýtingu sameiginlegra stofna í norðanverðu Atlantshafinu. Hjörvar Hjálmarsson, skipstjóri á Berki, var ánægður með túrinn. “Við fengum aflann í sjö holum og það var dregið frá 10 og upp í 22 tíma. Aflinn í holi var frá 300 tonnum og upp í 440 tonn. Þetta er hin þokkalegasta veiði og það er talsvert að sjá þarna. Fiskurinn er líka stór og feitur og hentar afar vel í vinnsluna. Síldarvinnsluskipin eru búin að veiða þarna um 17 þúsund tonn á einum þremur vikum sem er býsna gott. Þarna hefur verið töluverð veiði á þessum árstíma undanfarin ár og það skiptir okkur miklu máli. Auk íslensku skipanna eru komin þarna fjögur færeysk skip. Nú er stefnt á að Börkur haldi til síldveiða þannig að það verður hlé á kolmunnaveiðinni hjá okkur,” sagði Hjörvar.