Páll Jónsson GK landaði góðum afla á annan í páskum. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa nýverið landað í heimahöfn í Grindavík. Páll Jónsson landaði 124 tonnum á annan í páskum og Sighvatur landaði 70 tonnum í morgun. Heimasíðan sló á þráðinn til skipstjóranna og spurðist frétta. Benedikt Jónsson á Páli Jónssyni var ánægður með túrinn. “Við vorum heppnir í þessum túr og fylltum skipið í þremur og hálfri lögn. Veðrið var að mestu leyti gott á meðan við vorum á miðunum en veitt var í Meðallandsbugtinni. Fiskurinn sem fékkst þarna var mest stór og fallegur þorskur. Við vorum komnir til hafnar snemma á laugardagsmorgun og því gátu strákarnir fengið gott frí yfir páskahátíðina og það áttu þeir svo sannarlega skilið,” sagði Benedikt.

Sighvatur landaði í morgun og var afli hans mest þorskur en einnig langa og ýsa. Aðalsteinn Rúnar Friðþjófsson skipstjóri sagði að túrinn hefði verið erfiður vegna veðurs. ”Hjá okkur var þetta bölvaður brælutúr, sérstaklega var veðrið slæmt í lokin. Við vorum að mestu að veiðum í Meðallandsbugtinni en vegna veðurs þurftum við að fara dýpra þegar kom að síðustu lögninni. Alls voru lagnirnar tæplega fjórar. Túrinn hófst á því að við biðum eftir netabátnum Kap VE sem var á landleið til Vestmannaeyja í leiðindaveðri og átti í vélarvandræðum. Við fylgdum Kap til Eyja og það gekk vel,” sagði Aðalsteinn Rúnar.

Páll Jónsson hélt til veða á ný að kvöldi annars í páskum og Sighvatur mun láta úr höfn í kvöld. Hrygningarstoppð í þessum mánuði mun hafa mikil áhrif á það hvar bátarnir munu leggja línuna.