Makríllinn sem veiðist nú í Smugunni er bæði stór og fallegur. Ljósm. Geir Sigurpáll Hlöðversson

Í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað er nægum verkefnum að sinna. Lokið var við að vinna kolmunna úr Bjarna Ólafssyni AK í nótt og Margrét EA er væntanleg með um 650 tonn af makríl úr Smugunni um hádegi í dag. Oddur Einarsson yfirverkstjóri sagði að kolmunnavinnslan hefði gengið vel. Fiskurinn hefði verið stór og góður og hentað ágætlega til frystingar. Þá sagði hann að gott veiðiskot hefði komið á makrílmiðunum í Smugunni í gær þannig að útlit væri fyrir annir í fiskiðjuverinu á næstunni.

Oddur sagði jafnframt að makríllinn sem unninn hefði verið til þessa á vertíðinni hefði verið einstaklega gott hráefni. “Kvótinn er minni en verið hefur og skipin leggja alla áherslu á að koma með gott hráefni að landi. Þau toga í stuttan tíma og farmarnir eru minni en áður. Þá er aflinn mjög vel kældur um borð. Þetta þýðir að hráefnið er einstaklega ferskt og gott. Við höfum heilfryst mestallan aflann sem til okkar hefur borist og áhersla er lögð á að nýta hvern sporð eins vel og unnt er,” sagði Oddur.