Beitir NK veiddi bæði norsk-íslenska og íslenska sumargotssíld austur af landinu. Ljósm. Helgi Freyr Ólason

Beitir NK kom til Neskaupstaðar í gær með 645 tonn af síld. Síldin fékkst í tveimur stuttum holum norðan við Litla grunn á Héraðsflóanum. Það eru um 50 mílur frá Neskaupstað á þessi mið eða rúmlega fjögurra tíma stím. Um það bil helmingur aflans er norsk-íslensk síld og hinn helmingurinn er íslensk sumargotssíld. Heimasíðan ræddi við Tómas Kárason skipstjóra og spurði hann fyrst hvort mikið af síld héldi sig þarna. ”Við fórum ekki víða en þar sem við vorum var töluverða síld að sjá og aflann fengum við í tveimur tveggja tíma holum. Norsk-íslenska síldin sem við fengum er að meðaltali um 400 grömm en íslenska sumargotssíldin um 300 grömm. Meðalvigtin var um 350 grömm. Það hafa færeyskir bátar legið þarna fyrir utan og beðið eftir því að síldin gangi frá landinu svo þeir geti veitt hana en hún hefur ekki hreyft sig. Nú velta menn því fyrir sér hvort norsk-íslenska síldin sem þarna er nú muni hafa vetursetu hérna austur af landinu. Síldin sem þarna fékkst var hin fallegasta og hlýtur að henta vel til vinnslu,” sagði Tómas.

Vinnsla á síldinni úr Beiti hófst í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað fljótlega eftir að skipið kom til hafnar. Oddur Einarsson, yfirverkstjóri í fiskiðjuverinu, segir að síldin sé afar falleg. ”Þetta er fín síld og vinnslan gengur vel. Norsk-íslenska síldin er stærri en íslenska sumargotssíldin og það er fljótlegra að vinna hana. Við erum að framleiða flök og samflök auk þess sem hluti síldarinnar er heilfrystur. Þegar lokið verður við að vinna úr Beiti eftir hádegið í dag verður húsið þrifið hátt og lágt og síðan tekið helgarfrí. Starfsfólkið á svo sannarlega skilið að fá gott helgarfrí eftir langa og stranga vinnutörn,” sagði Oddur.