Landað úr Páli Jónssyni GK á mánudaginn. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, leggja áherslu á keiluveiði um þessar mundir. Páll jónsson landaði 116 tonnum af keilu og löngu í heimahöfn í Grindavík á mánudag og Sighvatur er að landa 60 tonnum af keilu í dag. Heimasíðan ræddi við skipstjórana og spurði þá um gang veiðanna. Jónas Ingi Sigurðsson, skipstjóri á Páli Jónssyni, var mjög ánægður með túrinn. “Við vorum heppnir og gerðum góðan túr. Það er í reyndinni glæsilegt að ná svona veiði í þessum tegundum. Við nefnum svona túra gjarnan skraptúra en með hækkun fiskverðs er spurning hvort rétt sé að gefa þeim slíkt heiti. Aflinn fékkst í fimm og hálfri lögn og við vorum allan tímann syðst í Grindavíkurdýpinu. Þetta var fallegur fiskur sem fékkst. Meðalvigt keilunnar var yfir þremur kílóum sem er gott og meðalvigt löngunnar var á milli fjögur og fimm kíló. Veiðin var jöfn og góð og ekki yfir neinu að kvarta,” sagði Jónas Ingi.

Óli Björn Björgvinsson, skipstjóri á Sighvati, sagði að þessi túr hefði ekki gengið alveg jafn vel og túrinn á undan sem var mjög góður. ”Verkefnið í þessum túr var að veiða keilu og við reyndum allvíða. Lagnirnar voru fimm í túrnum. Byrjað var á Eyrinni, síðan farið á Heimsmeistarahrygg, þaðan út á Pínulitla banka og endað með tveimur lögnum sunnan við Melsekk. Þetta gekk ekki alveg nógu vel að þessu sinni að okkar mati en hins vegar hefur gengið ágætlega að ná í keiluna að undanförnu. Ég reikna með að áhersla verði lögð á keilu- og lönguveiðar út ágúst og þá sérstaklega á keiluveiðar,” sagði Óli Björn.