
Loðnuveiðar hafa gengið vel og er samfelld vinnsla í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Heimasíðan heyrði hljóðið í skipstjórum skipanna sem landað hafa loðnu í Neskaupstað um helgina eða bíða löndunar . Barði NK kom með 800 tonn á laugardagsmorgun og var Þorkell Pétursson skipstjóri ánægður með veiðiferðina. “Loðnan var að skríða upp á grunnið suðvestan við Hornafjörð og voru allir bátarnir þar á tiltölulega litlu svæði. Við fengum aflann í tveimur köstum en loðnan var þarna í litlum en frekar sterkum torfum,” sagði Þorkell.
Beitir NK kom með 900 tonn á sunnudagsmorguninn og verður væntanlega lokið við að vinna úr honum nú um miðjan dag. Ólafur Gunnar Guðnason var að fara í sinn fyrsta nótaveiðitúr sem skipstjóri. Hann sagði að í reynd hefði allt gengið ljómandi vel enda væri hann með frábæran mannskap með sér. ”Við fengum aflann í þremur köstum í Mýrabugtinni en þar er veitt á milli hrauna eins og sagt er. Ég geri ráð fyrir að lokið verði við að landa úr skipinu um miðjan dag. Hér um borð eru allir hressir og njóta þess að fá að veiða loðnuna,” sagði Ólafur Gunnar.

Geir Zoёga, skipstjóri á grænlenska skipinu Polar Amaroq, var afar sáttur við gang veiðanna. ”Nú er rosalega gaman. Við fengum aflann, sem er 1.000 tonn, í þremur köstum á Mýragrunni og þar er heilmikið líf. Þarna er til dæmis mikið af hval. Skipin voru almennt að fá þokkalegasta afla á þessum slóðum. Hitt skip Polar-útgerðarinnar, Polar Ammassak, hélt með afla til Færeyja. Við munum hefja löndun strax á eftir Beiti,” sagði Geir.
Börkur NK kom til Neskaupstaðar fyrir hádegið í dag með 1.250 tonn. Hjörvar Hjálmarsson skipstjóri var bjartsýnn með framhaldið. ”Þetta lítur allt ágætlega út. Það er töluvert að sjá af loðnu sem er að ganga þarna upp á grunnið. Mér finnst ekki ósennilegt að hún eigi eftir að ganga tiltölulega hratt vestur eftir. Við byrjum væntanlega að landa á morgun þegar vinnslu lýkur úr Polar Amaroq,” sagði Hjörvar.
Allt bendir til að bræla verði á loðnumiðunum á morgun og á miðvikudaginn en síðan spáir vel.