
Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson
Línubátar Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa verið að fá töluvert af stóru brosmu að undanförnu. Oft hefur stóra brosma verið kölluð keilubróðir en um er að ræða þorskfisk af brosmuætt sem lifir í norðvestanverðu Atlantshafi á um þúsund metra dýpi. Stóra brosma verður allt að 1,2 metrar að lengd. Heimasíðan ræddi við Andrés Óskarsson hjá Vísi um þessa fisktegund og nýtingu á henni. “Bátarnir fá þennan fisk þegar þeir eru að veiða keilu en þá er veitt á miklu dýpi. Þessi fiskur hefur komið með keilunni og nú upp á síðkastið hefur það aukist. Í fyrra og í ár hafa línuskipin verið að koma með 10 – 20 kör af þessum fiski þegar áhersla er lögð á keiluveiði og það er engu líkara en hann sé að dreifa úr sér með suðurströndinni. Fiskurinn var áður seldur á markaði eða þá að hann var þurrkaður en nú hefur verið ákveðið að prófa að fletja hann og salta. Það verður spennandi að sjá hvernig það kemur út. Stóra brosma er alls ekki ófríður fiskur og ábyggilega góður matfiskur enda um þorskfisk að ræða,” sagði Andrés.

Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson