Frá björgunaræfingu með áhöfn Páls Jónssonar GK

Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa bæði landað í heimahöfn í Grindavík í þessari viku. Páll Jónsson landaði 82 tonnum á mánudag og Sighvatur 60 tonnum í morgun. Heimasíðan sló á þráðinn til skipstjóranna og fékk fréttir. Hákon Valsson, skipstjóri á Páli Jónssyni, sagði að túrinn hefði gengið vel. ”Við vorum að veiðum í Grindavíkurdýpinu og fengum aflann í fjórum lögnum. Það var leiðindafræsingur fyrst þegar komið var út en síðan lagaðist veðrið. Þetta var ekta skraptúr og áhersla lögð á að veiða keilu og löngu. Fiskurinn sem fékkst var fínn og meðalþyngd keilunnar yfir þrjú kíló sem er mjög gott. Þegar við vorum komnir út hafði Landhelgisgæslan samband og bað okkur að taka þátt í björgunaræfingu sem var að sjálfsögðu sjálfsagt mál. Æfingin var haldin með þyrlunni TF GRO og gekk í alla staði afar vel. Nú líður að nýju kvótaári og þá fáum við að veiða þær tegundir á ný sem við erum hrifnastir af að veiða. Nú fer semsagt að styttast í þann gula hjá okkur og það er gleðiefni,” sagði Hákon.

Aðalsteinn Rúnar Friðþjófsson, skipstjóri á Sighvati lét einnig vel af sér. ”Aflinn hjá okkur var langmest keila en svo var dálítið af löngu, karfa og blálöngu með. Aflann fengum við í fimm lögnum. Byrjað var nyrst á Melsekk, síðan haldið í Jökuldýpiskantinn, þá í Jökuldýpið og loks á Jökuldýpistunguna. Veiðin gekk þokkalega en það var heldur leiðinlegt veður í þessum túr. Þetta var síðasti túr á þessu kvótaári og nú eru bjartari tímar framundan. Það er alltaf tilhlökkunarefni að hefja nýtt kvótaár og áhöfnin er spennt að geta snúið sér að blessuðum þorskinum á ný,” sagði Aðalsteinn Rúnar.

Línuskipið Sighvatur GK í höfn í Grindavík. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson