
Beitir NK kom til heimahafnar í Neskaupstað í morgun með 850 tonn af loðnu. Að sögn Ólafs Gunnars Guðnasonar skipstjóra er um hina fallegustu loðnu að ræða og er hrognafyllingin orðin 17%. Verið er að vinna úr Barða NK í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar og mun löndun úr Beiti væntanlega hefjast í kvöld. Heimasíðan ræddi við Ólaf Gunnar skipstjóra og spurði um gang veiðanna. “Við fengum aflann í tveimur köstum út af Hjörleifshöfða ígær. Það voru 450 tonn í fyrra kastinu og um 400 í því síðara. Hlutfall hrygnu var 60% í fyrra kastinu en 40% í því síðara. Hér er um að ræða hrygnu sem fer í framleiðslu á Japan. Loðnuflotinn var að veiðum á talsverðu svæði eða alveg austur undir Alviðru. Á leiðinni austur urðum við varir við töluvert af loðnu, til dæmis var verulegt að sjá við Ingólfshöfðann. Við komum til hafnar í morgun og nú munu Hampiðjumenn lagfæra nótina en hún rifnaði dálítið í gær. Ég held að mönnum lítist ágætlega á framhald þessarar vertíðar,” sagði Ólafur Gunnar.

Gert er ráð fyrir að Polar Ammassak verði næsta skip sem kemur með loðnu til vinnslu í fiksiðjuver Síldarvinnslunnar í Neskaupstað.

Ljósm. Ingvar Ísfeld Kristinsson
