
Á undanförnum árum hefur Síldarvinnslan efnt til árshátíðarferða starfsfólks með um það bill þriggja ára millibili. Haldið hefur verið til útlanda og þar hafa menn notið samveru og skemmt sér innilega. Ferðir eins og þessar skipta miklu máli og auka samkennd starfsfólksins sem starfar ýmist í Neskaupstað, Seyðisfirði, Vestmannaeyjum eða í Grindavík. Þá vill fyrirtækið með árshátíðarferðunum þakka starfsfólkinu fyrir þann dugnað og þá elju sem það sýnir í sínum daglegu störfum.
Að þessu sinni var efnt til árshátíðarferðar til Sopot í Póllandi og voru þátttakendur í ferðinni liðlega 700 talsins. Flogið var frá Keflavík og Egilsstöðum dagana 30. og 31. október til Gdansk og þaðan var haldið til nágrannabæjarins Sopot. Dvalið var í Sopot á fjórum hótelum. Þegar allir voru komnir á áfangastað var efnt til glæsilegs gleðskapar á föstudagskvöldi þar sem var mikið dansað, spjallað og hlegið. Árshátíðin sjálf var síðan kvöldið eftir og var og hún haldin í mikilli sýningarhöll sem rúmaði mannfjöldann vel. Árshátíðin hófst með fordrykk þar sem pólsk hljómsveit með heillandi söngkonu sá um tónlistina. Að fordrykknum loknum hófst árshátíðin sjálf og var þá boðið upp á dýrindis máltíð og skemmtiatriði þar sem tónlistin réði ríkjum. Að borðhaldi loknu hófst síðan dansleikur sem stóð langt fram á nóttina. Öll umgjörð á árshátíðinni var hin glæsilegasta og ekkert fór á milli mála að vandað hafði verið til verka hvað varðaði allan undirbúning.

Það var ferðaskrifstofan Verdi sem skipulagði árshátíðarferðina og hafði Kristinn Þór Björnsson þar yfirumsjón. Guðjón Birgir Jóhannsson annaðist stjórn allra tæknimála og yfirmatreiðslumaður var Einar Geirsson. Á árshátíðinni sá Stuðlabandið um tónlistarflutning ásamt söngvurunum Ernu Hrönn, Diljá, Matta Matt, Hreimi og síðast en ekki síst Jóa P. og Króla. Veislustjórn annaðist Stefán Einar Stefánsson. Stuðlabandið og umræddir söngvarar sáu síðan um að halda uppi stanslausu fjöri á dansleiknum
Það virðist vera samdóma álit þeirra sem þátt tóku í ferðinni að hún hafi verið ógleymanleg og reyndar einstök upplifun. Það voru allavega sælir og glaðir starfsmenn sem skiluðu sér heim til Íslands dagana 3. og 4. nóvember. Hákon Ernuson, starfsmannastjóri Síldarvinnslunnar, var afar sáttur við ferðina og árshátíðina. ”Það gekk allt eins og í sögu og eiga allir sem komu að þessu mikið hrós skilið. Það skemmtu sér allir konunglega og það var einmitt tilgangurinn,” sagði Hákon.

Hér á eftir verða birtar myndir frá árshátíðarkvöldinu og má glögglega á þeim sjá að það var gleðin sem ríkti í Sopot það kvöldið og langt fram á nóttina.










