Góðri kolmunnatörn lokið

Kolmunnaveiði í færeysku lögsögunni er lokið að sinni en lengst af aflaðist mjög vel. Til Síldarvinnslunnar í Neskaupstað bárust 34.252 tonn af kolmunna í veiðitörninni. Fyrsti farmurinn kom þann 13. apríl og sá síðasti þann 13. maí.

Hörkuveiði að loknu hrygningarstoppi

Heimasíðan hafði samband við þá Júlíus Magnús Sigurðsson og Kristinn Arnberg Kristinsson, skipstjóra á krókaaflamarksbátnum Fjölni GK, en Vísir í Grindavík gerir bátinn út. Voru skipstjórarnir inntir eftir fréttum um aflabrögð í aprílmánuði og það sem af er maí.

Birtingur með fullfermi

Ísfisktogarinn Birtingur NK kom til Grindavíkur með fullfermi til löndunar á mánudaginn. Heimasíðan ræddi við Einar Ólaf Ágústsson skipstjóra og spurði um veiðiferðina. ”Þessi veiðiferð gekk vel.

Kynning ársuppgjörs Síldarvinnslunnar 2025

Gunnþór Björn Ingvason forstjóri gerir grein fyrir ársuppgjöri Síldarvinnslunnar 2025.

SÍLDARVINNSLAN HF.

Síldarvinnslan hf. er nú eitt af stærstu og öflugustu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins og byggir starfsemi sína á yfir hálfrar aldar reynslu í fiskvinnslu og útgerð. Fyrirtækið er hið umsvifamesta á Íslandi á sviði veiða og vinnslu á uppsjávartegundum og stærsti framleiðandi á fiskimjöli og lýsi á landinu.

VEIÐAR

Síldarvinnslan er einn stærsti kvótahafi á Íslandi. Aflaheimildir samstæðunnar á kvótaárinu 2022/2023 eru 220 þúsund tonn eða 52 þúsund þorskígildistonn.

VINNSLA

Síldarvinnslan er stærsti framleiðandi landsins á uppsjávarafurðum. Síldarvinnslan rekur í dag tvær fiskimjölsverksmiðjur, í Neskaupstað og á Seyðisfirði. Fyrirtækið rekur hátækni fiskiðjuver í Neskaupstað og þar eru einnig stærstu frystigeymslur á landinu. Fyrirtækið rekur bolfiskvinnslur í Grindavík.

STARFSFÓLKIÐ

Síldarvinnslan er hátækni sjávarútvegsfyrirtæki í fremstu röð. Fyrir slíkt félag er sífellt mikilvægara að ráða hæft fólk til starfa og tryggja strfsánægju þess. Félagið hefur því sett sér metnaðarfulla stefnu í starfsmannamálum sem miðar að því að skapa vinnuumhverfi sem einkennist af hvatningu, öryggi og góðum samskiptum