
Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa landað góðum afla í heimahöfn í Grindavík í þessari viku. Landað var úr Páli Jónssyni á mánudag og úr Sighvati í morgun. Heimasíðan ræddi stuttlega við skipstjórana og fékk fréttir af veiðunum. Benedikt Jónsson, skipstjóri á Páli Jónssyni, var mjög sáttur við veiðina. ”Við komum með kjaftfullan bát eftir fjórar lagnir. Aflinn var 130 tonn, meirihlutinn þorskur en einnig langa og ýsa. Þetta var stór og góður fiskur. Við lögðum tvisvar á Kötlugrunni og tvisvar í Meðallandsbugt. Það var bongóblíða allan túrinn en síðan fengum við bullandi lens á leiðinni til Grindavíkur. Þetta var hörkutúr og það reynir mikið á áhöfnina þegar svona fiskast,” sagði Benedikt.
Óli Björn Björgvinsson, skipstjóri á Sighvati, var einnig ánægður með túrinn þó veður hafi versnað mjög á meðan á honum stóð. ”Við vorum með 122 tonn og það var mest af löngu í aflanum en síðan þorskur og ýsa. Fyrstu tvo sólarhringana vorum við í góðu veðri en síðan skall á skítabræla og við vorum í brælunni í tvo og hálfan sólarhring eða meirihluta túrsins. Það var víða farið að þessu sinni. Við byrjuðum á að leggja í Eyjafjallasjó og síðan var lagt á Holtshrauni. Þá var lagt frá Holtshrauni og út í kant og síðan á Landsuðurhrauni. Loks var lagt á milli kapla fyrir sunnan Surt og að lokum var lagður stubbur norðan við Surt. Þetta voru semsagt rúmlega fimm lagnir í túrnum. Menn eru ágætlega sáttir við aflabrögðin þó alltaf sé áhugi fyrir því að koma með fullt skip að landi. Ég held að ekki sé unnt að kvarta enda aðstæður erfiðar í brælunni,” sagði Óli Björn.
Páll Jónsson hélt til veiða á ný á mánudagskvöld og Sighvatur mun láta úr höfn í kvöld.