Robert Lagerman tefldi fjöltefli í Grænlandsheimsókninni. Ljósm. Adelina Antal

Árið 2003 hóf skákfélagið Hrókurinn undur forystu Hrafns heitins Jökulssonar að efna til árlegra skákkynninga á Grænlandi. Efnt var til kynninga í Kulusuk á Austur – Grænlandi, í bænum Tasiilaq og í fleiri smærri bæjum. Í hverri Grænlandsferð var efnt til sérstakrar skákhátíðar í bænum Tasiilaq og var hún styrkt af útgerðarfélaginu Polar Pelagic sem Síldarvinnslan á hlut í. Skáhátíðin bar heitið Polar Pelagic Skakfest.

Skákkynningarnar á Austur-Grænlandi fóru fram árlega til ársins 2023 en féllu þá niður. Nú hefur Kalak, vinafélag Grænlands og Íslands, endurvakið þær og var fyrsta ferðin farin í nýliðnum aprílmánuði. Róbert Lagerman hélt þá til Grænlands og í för með honum var Adelina Antal kvikmyndagerðarkona. Ætlunin var að efna til Polar Pelagic skákmóts í Tasiilaq en vegna bilunar í þyrlu var ekki unnt að komast þangað og því var dvalið í Kulusuk í vikutíma. Í ferðinni var efnt til Polar Pelagic skákhátíðar, haldnir skákfyrirlestrar, boðið upp á fjöltefli, barnaheimili heimsótt með gjafir frá íslenskum eldri borgurum og samfélaginu færð töfl og skákklukkur að gjöf.

Að sögn Róberts Lagermans tókst Grænlandsferðin afar vel og virtust grænlensku börnin kunna vel að meta það sem íslensku gestirnir buðu upp á. Róbert lagerman er landsliðsþjálfari Grænlendinga í skák og er stefnt að því að Grænlenfingar taki þátt í Ólympíuskákmóti í haust.

Sæll og glaður sigurvegari á skákhátíðinni.
Ljósm. Adelina Antal