Landað úr Páli Jónssyni GK í Grindavík. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, lönduðu bæði fullfermi í heimahöfn í Grindavík fyrr í vikunni. Páll Jónsson landaði 134 tonnum á mánudag og Sighvatur 128 tonnum á þriðjudag. Skipstjórarnir voru hressir með veiðina og töluðu um rótarfiskirí.

Benedikt Jónsson á Páli Jónssyni sagði að megnið af aflanum væri þorskur og ýsa. “Við fengum ágætt af ýsu og það er mikilvægt. Við tókum þetta í fimm og hálfri lögn. Fyrsta lögnin var við Díönuboða en síðan fékkst þetta austan við Hvalbakinn. Það var jöfn veiði eða 23 – 28 tonn í lögn. Það virðist víða vera fiskur fyrir austan landið. Fyrstu þrjá sólarhringana í túrnum var bræluskítur og stórstreymt en síðan var bongóblíða. Strákarnir eru allir alsáttir,” sagði Benedikt.

Óli Björn Björgvinsson á Sighvati sagði að létt væri yfir öllum um borð. ”Þetta gekk afar vel. Við byrjuðum á Gaurasvæðinu sunnan við Hvalbakinn og tókum þar fjórar lagnir. Síðasta lögnin var síðan tekin suður af Hornafirði. Það var góður afli í hverri lögn eða 24 – 26 tonn og menn geta ekki verið annað en ánægðir með aflabrögðin. Það var líka mjög mikilvægt að geta blandað aflann en við vorum með um 50 tonn af ýsu. Fyrst í túrnum var kaldafýla en síðan blíða og við fengum lens alla leiðina heim til Grindavíkur,” sagði Óli Björn.

Páll Jónsson hélt til veiða á ný fljótlega eftir að löndun lauk og Sighvatur lagði úr höfn í gærkvöldi.