

Hjá starfsmönnum frystigeymsla Síldarvinnslunnar í Neskaupstað er nýlokið tiltölulega stórri útskipun. Frystiskipið Silver Dania kom til Neskaupstaðar á laugardag og útskipuninni lauk á mánudag. Alls fóru um borð í skipið 2.585 tonn af síld og makríl. Heimasíðan ræddi við Stefán Einar Elmarsson rekstrarstjóra frystigeymslanna og spurði hann um starfsemina. “Hjá okkur eru alltaf næg verkefni. Útskipunin núna gekk vel og hún var kærkomin. Við þurftum nefnilega nauðsynlega að rýma fyrir loðnunni sem nú er fryst í fiskiðjuverinu bæði dag og nótt. Með útskipuninni fengum við gott pláss og það veitir ekki af því. Allt sem skipið tók er selt en til að byrja með verður það flutt í milligeymslu í Færeyjum. Fyrir utan skipin sem koma og lesta frystan fisk sendum við frystan fisk út í gámum jafnt og þétt og fara gámarnir í skip á Reyðarfirði. Í þessari viku erum við til dæmis að senda frá okkur um 60 gáma fyrir utan það sem Silver Dania tók. Næsta frystiskip til okkar er væntanlegt í lok febrúar þannig að fram að því verður gámaútflutningurinn að duga,” sagði Stefán.