
Hjá Vísi í Grindavík er bæði rekin saltfiskvinnsla og frystihús. Hér verður gefin örlítil innsýn í starfsemina í salthúsinu.
Saltfiskverkun Vísis hefur verið rekin í sama húsinu frá því að fyrirtækið var stofnað árið 1965 en byggt var við húsið um aldamótin 2000. Vélbúnaður í salthúsinu hefur tekið miklum breytingum í gegnum tíðina og er framleiðslan nú mjög tæknivædd. Heimasíðan ræddi við Jón Steinar Sæmundsson verkstjóra í salthúsinu og bað hann um að segja í fáum orðum frá starfseminni. “Hér í salthúsinu vinna um 50 manns og að auki starfa 10 manns í svonefndu Gjögurhúsi sem er slægingar- og pökkunarhús. Mikill meirihluti starfsfólks er af erlendum uppruna og þetta fólk hefur flest starfað lengi hjá fyrirtækinu. Ég gæti trúað að meðalstarfsaldur þess sé 10 – 15 ár. Starfsmannaveltan er ótrúlega lítil. Stór hluti þessara starfsmanna átti orðið húsnæði í Grindavík áður en bærinn var rýmdur en fólkið hefur haldið áfram að starfa hjá okkur eftir rýmingu. Það sem af er ári hefur verið tekið á móti um 4000 tonnum af hráefni hjá okkur. Hráefnið skiptist þannig eftir tegundum; um 3000 tonn þorskur, um 800 langa og rúmlega 200 ufsi en lítið af örðrum tegundum. Frá áramótum höfum við pakkað um 2000 tonnum af fullunnum saltfiski. Stærstu markaðirnir fyrir saltfiskinn okkar eru Ítalía, Spánn, Grikkland og Portúgal, en þessir markaðir í sunnanverðri Evrópu eru þeir bestu. Línufiskurinn fer mest á ítalíu, Spán og Grikkland en togarafiskurinn fer á Portúgal. Starfsemin hjá okkur hér í salthúsinu hefur gengið afar vel og það er skemmtilegt að fylgjast með því hve eftirspurnin eftir framleiðsluvörunni okkar er mikil,” sagði Jón Steinar.