Börkur NK kom til hafnar í gær með 1.590 tonn af íslenskri sumargotssíld.
Ljósm. Smári Geirsson

Börkur NK kom til Neskaupstaðar í gærmorgun með 1.590 tonn af íslenskri sumargotssíld. Löndun hófst strax. Heimasíðan ræddi við Hjörvar Hjálmarsson skipstjóra og spurði fyrst hvernig veiðiferðin hefði gengið. “Hún gekk bara vel og menn eru bara lukkulegir. Að vísu var veðrið heldur leiðinlegt þannig að um brælutúr var að ræða en þetta slapp allt saman. Við vorum að veiðum í Kolluálnum, norðan í Jökultungunni og þetta er alltaf sama fína síldin sem fæst þarna. Aflinn fékkst í sex holum og yfirleitt var dregið í 6 – 7 tíma. Þarna voru allmörg skip að veiðum á tiltölulega litlum bletti. Gera má ráð fyrir að löndunin taki um tvo sólarhringa en aflinn er unninn jafnóðum og landað er. Lönduninni ætti því að ljúka á fimmtudagskvöld og þá verður væntanlega strax haldið til síldveiða á ný,” segir Hjörvar.

Vinnsla síldarinnar gengur vel í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar og er víst að síld verður unnin þar vel fram í desembermánuð. Þegar lokið verður við að vinna aflann úr Berki verður Vilhelm Þorsteinsson EA væntanlega kominn en hann er að leggja af stað af miðunum fyrir vestan land með rúmlega 1.500 tonn.