Samfélagsskýrsla Síldarvinnslunnar fyrir árið 2024 var gefin út og kynnt á aðalfundi félagsins í Neskaupstað sl. fimmtudag. Útgáfa samfélagsskýrslu er mikilvægur liður í upplýsingagjöf félagsins um ófjárhagslega þætti í starfsemi þess. Í skýrslunni er meðal annars að finna nákvæmt umhverfisbókhald samstæðunnar fyrir árið 2024 sem og ýmsar aðrar upplýsingar sem tengjast stjórnarháttum og sjálfbærni- og samfélagsmálum. Líkt og í samfélagsskýrslum fyrri ára er fjallað um fjölbreytileg málefni sem varða hvernig félagið tengist þeim samfélögum sem það starfar í. Í henni má m.a. finna umfjöllun um helstu áfanga ársins og áherslur félagsins í mannauðs- og öryggismálum. Þá er í skýrslunni yfirlit um  þau samfélagsverkefni sem félagið studdi á árinu og einnig það samfélagsspor sem félagið skildi eftir sig á árinu 2024.

Upplýsingar í skýrslunni ná til Síldarvinnslunnar og dótturfélaga á Íslandi. Sem fyrr tekur skipulag skýrslunnar mið af leiðbeiningum frá Nasdaq Ísland kauphöllinni um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja með sérstaka áherslu á sjálfbærni. Einnig voru tekin fyrstu skref í átt að aðlögun að væntanlegum lagabreytingum um ófjárhagslega upplýsingagjöf. Við gerð skýrslunnar var einnig horft til þeirra áhersluatriða sem felast í sjálfbærnistefnu Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS). Loks er fjallað um niðurstöður úr tvöfaldri mikilvægisgreiningu sem unnin var í samvinnu við Deloitte á árinu 2024.

Síldarvinnslan hefur vaxið og dafnað á síðustu árum og áratugum og er kjölfestufyrirtæki í þeim samfélögum sem fyrirtækið starfar í. Samfélagsskýrslan er liður í að greina frá því sem vel er gert og benda á það sem betur má fara, því ávallt eru möguleikar til að gera betur.

Gunnþór B. Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar segir eftirfarandi um skýrsluna:

„Helsta markmið Síldarvinnslunnar með útgáfu samfélagsskýrslu er að auka gagnsæi um starfsemi félagsins. Ófjárhagslegar upplýsingar vegna starfsemi félagsins eru ekki síður mikilvægar en fjárhagslegar. Við gefum nú út samfélagsskýrslu sjötta árið í röð og hefur hún þróast með árunum. Skýrslan er fræðandi um fjölbreytta anga starfseminnar og er gott og aðgengilegt yfirlit um mikilvæga þætti hennar. Síldarvinnslan hefur yfir að ráða frábæru starfsfólki sem er sterkasta stoð félagsins. Í þessari skýrslu er lögð áhersla á okkar mannauð og í henni má t.a.m. finna viðtöl við starfsfólk sem sinnir mikilvægum og fjölbreyttum störfum fyrir Síldarvinnsluna frá degi til dags. Síldarvinnslan vill vera í fararbroddi á sviði samfélagslegrar ábyrgðar. Allt frá stofnun félagsins árið 1957 hefur fyrirtækið verið kjölfestufyrirtæki í sjávarútvegi og því fylgir mikil ábyrgð. Hagsmunir samfélaga og fyrirtækja eiga að fara saman, þannig lítum við á það sem styrk að vinna með og styðja við þau öflugu samfélög þar sem við störfum“. 

Skýrsluna má nálgast hér:

Nánari upplýsingar veitir Gunnþór B. Ingvason forstjóri í síma 470 7000.